IFK Gautaborg varð sænskur bikarmeistari í dag eftir spennandi úrslitaleik gegn Djurgården sem endaði í vítaspyrnukeppni.
Staðan var jöfn 1-1 eftir venjulegan leiktíma og grípa þurfti til framlengingar. Hvorugu liðinu tókst að skora í framlengingunni og réðust úrslitin því í vítaspyrnukeppni.
Staðan var jöfn 1-1 eftir venjulegan leiktíma og grípa þurfti til framlengingar. Hvorugu liðinu tókst að skora í framlengingunni og réðust úrslitin því í vítaspyrnukeppni.
Þar hafði Gautaborg betur 4-2 og tryggði sér þar með sinn sjötta bikarmeistaratitil í sögu félagsins.
Íslendingarnir Hjálmar Jónsson og Hjörtur Logi Valgarðsson eru á mála hjá Gautaborg en Hjálmar sat allan tíman á bekknum á meðan Hjörtur Logi var ekki í hóp.


