Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   sun 26. maí 2013 18:58
Sebastían Sævarsson Meyer
Ítalía: Lazio bikarmeistari eftir borgarslaginn í Róm
Roma 0 - 1 Lazio
0-1 Senad Lulic ('71)

Lazio er ítalskur bikarmeistari eftir fjörugan úrslitaleik gegn erkifjendunum í Roma, en leikurinn fór fram á heimavelli beggja liða, Ólympíuleikvanginum í Róm.

Lazio vann 1-0 sigur þar sem Senad Lulic skoraði sigurmarkið á 71. mínútu eftir undirbúning frá Antonio Candreva.

Francesco Totti var nálægt því að jafna leikinn fyrir Roma mínútu síðar þegar skalli hans rataði í slána.

En þrátt fyrir mörg góð færi þá var ekki fleira skorað og lokatölur 1-0, Lazio í vil en þetta er í sjötta sinn sem félagið vinnur titilinn.
Slapp
banner
banner
banner