Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
HM Álitið: Hvaða lið vinnur mótið?
Munur á Spáni og Íslandi - „Gylfi Sig á miðjunni og einhver rafvirki í vinstri bakverði“
Tómas Bent fer yfir tímabilið í Skotlandi - „Ákveðin pyntingaraðferð“
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
Gylfi um skilaréttsmálið: Meira en ánægður að hafa skipt
Aron Einar: Get staðfest að ég verð ekki áfram í Al-Gharafa
Sædís Rún: Á okkar degi getum við náð stigum af öllum liðum
Gagnrýnir nýju reglurnar harðlega - „Alveg skelfilegt ef ég á að vera hreinskilin“
Katla Tryggva fyrir Spánarleikinn: Það er alveg hægt að stríða þeim
Hödda langaði að fagna eins og Auðun gegn Haukum - „Allir á bekknum brjálaðir að hann hefði skotið"
   sun 26. maí 2013 23:15
Fótbolti.net
Jóhann Þórhalls: Bekkurinn ekki síðri en þeir sem byrja
Mynd: Heimasíða Þórs
„Þetta er æðislegt. Það er gaman að vinna fótboltaleiki. Þetta snýst um það og það tókst i dag,“ sagði Jóhann Þórhallsson, leikmaður Þórs, í samtali við Fótbolta.net eftir 4-1 sigurinn á Fylki.

Það var fjörugur leikkafli í fyrri hálfleik þar sem Þórsarar komust yfir og Fylkismenn misstu mann af velli með rautt spjald. Fylkismenn efldust aðeins við mótlætið fyrst um sinn en áttu svo fá svör við leik Þórsara í síðari hálfleik. Aðspurður um upplegg Þórsara fyrir síðari hálfleikinn svaraði Jóhann:

„Við ætluðum að teygja á þeim og lögðum náttúrulega fyrst og fremst upp með að gera það og keyra aðeins á þá. Það tókst. Við skoruðum mark snemma í seinni hálfleik og það er erfitt fyrir þá að koma til baka.“

Páll Viðar Gíslason kom mörgum á óvart og gerði tvær breytingar á liði sínu í hálfleik þrátt fyrir að vera yfir. Nýju mennirnir komu sterkir inn og Jóhann var ánægður með þeirra framlag.

„Við erum með jafnan og góðan hóp. Þeir sem eru á bekknum eru ekkert síðri en þeir sem byrja og þeir komu flottir inn og stóðu sig vel.“
Eftir þrjá tapleiki í upphafi móts eru Þórsarar komnir á sigurbraut.

„Þetta eykur sjálfstraustið. Við byrjuðum á erfiðu prógrammi og náðum ekki stigi út úr fyrstu þremur leikjunum. Við vorum svona hálf brotnir eftir það en vonandi er þetta til að auka sjálfstraustið hjá okkur.“

Að lokum spurðum við Jóhann út í eigin frammistöðu en hann var besti maður vallarins gegn sínum gömlu félögum.

„Ég er mjög sáttur með minn leik. Ég var ánægður með spilamennskuna hjá mér og liðinu í heild.“

Hægt er að horfa á viðtalið við Jóhann í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
banner
banner
banner