,,Skrokkurinn er flottur. Þakka þér fyrir að spyrja. Nú þarf maður bara að passa skokkið og rúlla sig og svona og vera klárir í næsta slag," sagði Jón Jónsson varnarmaður FH eftir að hafa klárað annan byrjunarliðsleikin í röð. Jón Ragnar spilar í hægri bakverðinum í fjarveru Guðjóns Árna Antoníussonar sem er meiddur og sendi fínar fyrirgjafir inn í teiginn.
,,Ég var kannski að krossa honum meira í fyrri hálfleik. Ég átti tvo ágætis krossa og það hefði verið ljúft ef annar hvor Atlanna hefði náð að tylla honum inn en svo var ég með skítakrossa sem Ármann og Kári tóku léttilega. Ég þarf að æfa eitthvað betur þessa krossa en engu að síður er gaman þegar maður nær að fara fram á völlinn og valda smá usla."
Nánar er rætt við Jón Ragnar í sjonvarpinu ða ofan.























