Markvörðurinn Josh Wicks verður ekki með Þór þegar liðið heimsækir Fylki í Pepsi-deildinni klukkan 20:00 í kvöld.
Unnusta Wicks ber barn undir belti og hún á von á sér innan tíðar. Hann fór því ekki með liði Þórs í leikinn í Árbænum.
Unnusta Wicks ber barn undir belti og hún á von á sér innan tíðar. Hann fór því ekki með liði Þórs í leikinn í Árbænum.
,,Óska strákunum góðs gengis á leið í leikinn í dag!! Standið ykkur!!" skrifaði Wicks á Twitter síðu sína í dag.
Búast má því að Srdjan Rajkovic taki stöðu Wicks í markinu í kvöld.
Wicks kom til Þórs um mitt sumar í fyrra en hann hefur varið mark liðsins í öllum leikjum þess í Pepsi-deildinni í sumar.


