Heimild: BBC
Þá er komið að daglegum slúðurpakka í boði Powerade en þar er búið að taka saman helsta slúðrið í ensku miðlunum.
Manchester United ætlar að bjóða 25 milljónir punda í Cesc Fabregas miðjumann Barcelona. (Sunday Express)
David Moyes nýr stjóri Man Utd mun byrja á að kaupa Marouane Fellaini frá sínu gamla félagi, Everton, á 24 milljónir punda og ganga svo frá því að Wayne Rooney verði áfram. (Sunday Mirror)
Carlo Ancelotti mun bjóða Rooney möguleika á að koma til Real Madrid þegar hann tekur við þar en vill ekki skipta á Cristiano Ronaldo. (The People)
Real Madrid ætlar að bjóða 60 milljónir punda í Gareth Bale leikmann Tottenham en enska félagið vill ekki selja. (Sunday Telegraph)
Manuel Pellegrini verðandi stjóri Manchester City hefur beðið eigendur félagsins um að kaupa fjóra leikmenn í sumar, og einn þeirra er Luis Suarez framherji Liverpool. (People)
Arsenal er að fá belgíska markvörðinn Simon Mignolet frá Sunderland á 10 milljónir punda en Arsene Wenger getur eytt 70 milljónum punda í sumar. (Sunday Mirror)
Paul Lambert stjóri Aston Villa ætlar að bjóða 3 milljónir punda í Dwight Gayle 22 ára framherja Peterborough en það tengist þó ekki framtíð Christian Benteke á neinn hátt. (Mail on Sunday)
Lyon hefur haft samband við Arsenal um að fá Gervinho á láni út næstu leiktíð. (Metro)
Everton mun reyna að fá David Weir fyrrverandi fyrirliða liðsins til að taka við knattspyrnustjórastöðunni ef Roberto Martinez ákveður að halda áfram með Wigan. (Mail on Sunday)
Everton íhugar að bjóða Ole Gunnar Solskjær knattspyrnustjórastöðuna en hann stýrir í dag Molde í Noregi. (Sunday Telegraph)
Stoke City mun skoða Malky Mackay stjóra Cardiff, Roberto Di Matteo fyrrverandi stjóra Chelsea og Gus Poyet stjóra Brighton ef Mark Hughes hafnar tilboði félagsins um að taka við knattspyrnustjórastöðunni. (Sunday Express)
Leicester City reynir að fá Martin O'Neill til að taka við liðinu aftur. (Mail on Sunday)
Jose Mourinho hefur samþykkt fjögurra ára samning við Chelsea og verður launahæsti stjórinn í ensku deildinni með yfir 8,5 milljónir punda á ári eftir skatta. (Sunday Times)
Nýtt lið í bandarísku deildinni sem staðsett er í Miami vill ráða David Beckham sem framkvæmdastjóra. (Sunday Express)




