Barcelona staðfesti rétt í þessu á vef sínum að Neymar sé genginn til liðs við félagið og muni spila með liðinu næstu fimm tímabil.
Neymar staðfesti tíðindin fyrst sjálfur á Twitter og Instagram síðum sínum og í kjölfarið birti Barcelona frétt á vef sínum þar sem kemur fram að félagið og Santos í Brasilíu hafi náð samningum um félagaskiptin.
Neymar sem er 21 árs gamall og hefur verði mikið umtalaður undanfarin ár fyrir að vera einn efnilegasti leikmaður heims. Hann getur spilað allar sóknarstöðurnar á vellinum, og er jafnfættur hvort sem það er í að rekja boltann eða að skjóta.
Hann kom upp úr unglingastarfi Santos í heimalandi sínu og er enn þann dag í dag að spila þar.
Færsla Neymar á Twitter um félagaskiptin:
Galera !!Tô aqui reunido com amigos e familiares e eles me ajudaram a escrever algumas coisas… instagram.com/p/ZwXvcIxtnX/
— Neymar Júnior (@Njr92) May 26, 2013



