Það var spilað í norska boltanum í dag þar sem Íslendingarnir okkar þar komu flestir við sögu.
Pálmi Rafn Pálmason lék allan leikinn með Lilleström í 3-0 sigri á Haugesund en Pálmi og félagar eru í níunda sæti.
Pálmi Rafn Pálmason lék allan leikinn með Lilleström í 3-0 sigri á Haugesund en Pálmi og félagar eru í níunda sæti.
Steinþór Freyr Þorsteinsson lék með tapliði Sandnes Ulf sem lá úti fyrir Odd en Sandnes er á botninum. Indriði Sigurðsson og Jón Daði Böðvarsson gerðu þó betur með Viking þegar liðið vann 2-1 sigur á Tromsö. Viking er í þriðja sæti.
Þá skoraði Matthías Vilhjálmsson jöfnunarmark Start gegn Sogndal þegar liðin skildu jöfn 1-1. Matthías skoraði markið á 69. mínútu, tíu mínútum eftir að hafa komið inn á sem varamaður. Guðmundur Kristjánsson lék allan leikinn með Start en liðið er í þrettánda sæti.
Í lokaleik dagsins hafði Brann síðan betur gegn Sarpsborg 3-1. Birkir Már Sævarsson spilaði allan leikinn með Brann en hjá Sarpsborg lék Guðmundur Þórarinsson allan leikinn og Ásgeir Börkur Ásgeirsson kom af velli tíu mínútum fyrir leikslok.
Brann er í fjórða sæti en Sarpsborg í því tíunda.
