Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   sun 26. maí 2013 10:49
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: Sky 
Pellegrini segist ekki vera búinn að semja við Man City
Manuel Pellegrini þjálfari Malaga á Spáni segir að hann hafi ekki skrifað undir samning um að taka við Manchester Ctiy.

Pellegrini er talinn líklegastur til að taka við starfi Roberto Mancini hjá enska félaginu en hann hefur þegar staðfest að hann hætti með spænska liðið eftir lokaumferð spænsku deildarinnar um næstu helgi. Fyrst ætlar hann samt að koma Malaga í Evrópukeppni.

,,Ég hef svarað þessu oft," sagði Pellegrini á fréttamannafundi aðspurður hvort hann væri að fara að taka við Man City.

,,Þegar við höfum spilað gegn Deportivo munum við sjá til með framtíð mína og hvert ég fer. Ég hef ekki skrifað undir neinn samning ennþá," sagði hann.

,,Þegar ég er hættur hjá Malaga og hef lokið leikjunum munum við sjá hvar framtíð mín liggur. En í bili mun ég bara ræða núverandi stöðu mína hjá Malaga."
Slapp
banner
banner
banner