Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   sun 26. maí 2013 21:06
Sebastían Sævarsson Meyer
Pepsi-deildin: Valur og FH unnu þægilega heimasigra
Rúnar Már skoraði tvö mörk fyrir Val.
Rúnar Már skoraði tvö mörk fyrir Val.
Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir
Tveimur leikjum var að ljúka í Pepsi-deildinni þar sem Valur og FH unnu þægilega heimasigra.

Valur vann 4-0 sigur á Keflavík. Hakur Páll Sigurðsson skoraði fyrsta markið í fyrri hálfleik og í seinni hálfleik skoraði R'unar Már Sigurjónsson tvö mörk fyrir heimamenn á níu mínútnakafla. Kolbeinn Kárason skoraði síðan fjórða markið, örfáum sekúndum eftir að hafa komið inn á sem varamaður.

Valur er nú með ellefu stig í þriðja sæti en Keflavík er í níunda sæti með fjögur stig eftir fyrstu fimm leikina.

FH lagði ÍA að velli með tveimur mörkum gegn engu og er þar með á toppi deildarinnar eins og stendur. FH komst yfir í leiknum eftir sjálfsmark Jan Mikel Berg og Atli Guðnason innsiglaði síðan sigurinn.

ÍA er áfram í tíunda sæti með þrjú stig.

Valur 4 - 0 Keflavík
1-0 Haukur Páll Sigurðsson ('17)
2-0 Rúnar Már Sigurjónsson ('60)
3-0 Rúnar Már Sigurjónsson ('69, víti)
4-0 Kolbeinn Kárason ('78)
Rautt spjald: Samúel Kári Friðjónsson, Keflavík ('83)

FH 2 - 0 ÍA
1-0 Atli Guðnason ('51)
2-0 Atli Guðnason ('64)
Slapp
banner
banner