Víkingur Ólafsvík 0 - 0 ÍBV
Víkingur Ólafsvík fékk sitt fyrsta stig í Pepsi-deildinni í kvöld eftir markalaust jafntefli gegn ÍBV á heimavelli.
Eftir fjóra tapleiki í fyrstu fjórum leikjunum hafa Ólsarar loksins landað sínu fyrsta stigi í efstu deild.
Það var þó ekki hægt að hrópa húrra fyrir leiknum sjálfum sem var afskaplega tíðindalítill og fengu áhorfendur ekki mikið fyrir peninginn.
Það var ekki fyrr en á lokakafla leiksins þegar liðin náðu að skapa einhverja hættu en án árangurs og því lauk leiknum 0-0.
Frekari umfjöllun um leikinn er væntanleg á síðuna ásamt viðtölum.


