Þróttur Reykjavík 1 - 4 Þór/KA
1-0 Petrea Björt Sævarsdóttir ('59)
1-1 Kayle Grimsley ('62)
1-2 Lillý Rut Hlynsdóttir ('63)
1-3 Markaskorara vantar ('78)
1-4 Katrín Ásbjörnsdóttir ('80)
1-0 Petrea Björt Sævarsdóttir ('59)
1-1 Kayle Grimsley ('62)
1-2 Lillý Rut Hlynsdóttir ('63)
1-3 Markaskorara vantar ('78)
1-4 Katrín Ásbjörnsdóttir ('80)
Þór/KA vann öruggan 4-1 sigur á Þrótti Reykjavík í Pepsi-deild kvenna í dag, en leikurinn fór fram á Valbjarnarvelli.
Staðan var markalaus í hálfleik en á 59. mínútu komst Þróttur Reykjavík þegar Petrea Björt skoraði fyrir heimamenn.
En gestirnir frá Akureyri svöruðu fljótt og skoruðu tvö mörk skömmu síðar, en fjórum mínútum eftir að Þróttur hafði komist yfir var staðan allt í einu orðin 2-1 fyrir Þór/KA.
Þór/KA gerði síðan út um leikinn með tveimur mörkum á tveggja mínútna kafla tíu mínútum fyrir leikslok og lokatölur 4-1 fyrir gestina.
Þór/KA er þar með í þriðja sæti eins og stendur með átta stig en Þróttur Reykjavík er enn án stiga eftir fyrstu fimm leikina.



