Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   sun 26. maí 2013 14:06
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: Sky 
Podolski segist ekki fara frá Arsenal
Mynd: Twitter
Lukas Podolski segir ekkert til í sögusögnum þess efnis að hann fari frá Arsenal í sumar.

Hann kom til félagsins frá Köln í Þýskalandi síðasta sumar en tyrkneska stórliðið Galatasaray er talið hafa sýnt honum áhuga.

Sjálfur segist þessi þýski landsliðsmaður hinsvegar ekki ætla sér að fara neitt.

,,Mér líður nokkuð vel með og er fullkomnlega sáttur með fyrsta árið mitt á Englandi," sagði Podolski við Spox.com.

,,Ég ætla mér ekki að yfirgefa félagið. Sögur eru sögur og ég get ekki stoppað þær."

Podolski skorað 16 mörk fyrir Arsenal í öllum keppnum á tímabilinu en liðið endaði í fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar.
Slapp
banner
banner