Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   sun 26. maí 2013 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: Reuters 
Rogers sem kom út úr skápnum samdi við LA Galaxy (Staðfest)
Robbie Rogers fyrrverandi leikmaður Leeds United hefur ákveðið að taka fram skóna að nýju og samdi við Los Angeles Galaxy í Bandaríkjunum um helgina.

Rogers verður eini fótboltamaðurinn sem spilar í dag og hefur opinberað að hann sé hommi. Hann er 26 ára gamall kantmaður sem var hjá Leeds United og Stevenage á Englandi en var áður hjá Columbus Crew í Bandaríkjunum. Hann hefur æft með Galaxy undanfarnar þrjár vikur.

Hann kom út úr skápnum í febrúar síðastliðnum en sama dag tók hann ákvörðun um að hætta í fótbolta. Nú snýr hann aftur og verður í hópnum gegn Seattle Sounders í dag ef félagaskipting ná að ganga í gegn.

Fyrir mánuði síðan varð körfuboltamaðurinn Jason Collins fyrsti íþróttamaðurinn í fjórum stærstu íþróttadeildum Bandaríkjanna til að opinbera að hann sé hommi. Hann er félagslaus núna og hefur ekkert spilað síðan hann tilkynnti þetta eftir síðustu leiktíð.

Rogers segir að hann hafi fengið mikinn stuðning eftir tilkynninguna í febrúar og meðal þeirra sem hafi hringt í sig til að sýna sér stuðning hafi verið Barack Obama Bandaríkjaforseti. Hann vildi þó ekki láta það hafa áhrif á ákvörðun sína að snúa aftur í fótbolta og ákvað nú að snúa aftur á eigin forsendum.

Hann var í Ólympíuliði Bandaríkjamanna í Peking 2008 en rétt missti af sæti í HM hópnum 2010.
Slapp
banner