Þriðji sjónvarpsþáttur Fótbolta.net var á dagskrá í fyrradag. Þátturinn er á SportTv á föstudögum klukkan 12:30.
Þættinum var skipt upp í þrjá hluta og hér að neðan má sjá tengla á alla hlutana fyrir þá sem vilja horfa.
1: Hjörtur Hjartarson skoðaði Pepsi-deildina
Í fyrsta hluta þáttarins var Pepsi-deildin skoðuð að vanda. Hjörtur Hjartarson mætti í heimsókn og skoðaði helstu umræðuefnin með Sóla Hólm og Sigurbirni Hreiðarssyni.
SMELLTU HÉR TIL AÐ HORFA Á FYRSTA HLUTA ÞÁTTARINS
2: Baldur Sig í spjalli við Sóla og Bjössa
Baldur Sigurðsson, miðjumaður KR, kom í heimsókn í öðrum hluta þáttarins. Baldur spjallaði við Sóla Hólm og Sigurbjörn Hreiðarsson en Baldur hefur farið á kostum í upphafi Íslandsmóts.
SMELLTU HÉR TIL AÐ HORFA Á ANNAN HLUTA ÞÁTTARINS
3: Gústi Gylfa og Maggi skoða 1. deildina
Í þriðja og síðasta hluta þáttarins mættu þeir Ágúst Gylfason, þjálfari Fjölnis, og Magnús Már Einarsson, sérfræðingur þáttarins, og skoðuðu 1. deildina. Mörkin úr sigri Tindastóls gegn Þrótti voru skoðuð.
SMELLTU HÉR TIL AÐ HORFA Á ÞRIÐJA HLUTA ÞÁTTARINS
Þátturinn er á föstudögum klukkan 12:30 í beinni vefútsendingu á SportTv.is og einnig sýndur í sjónvarpi á rás 17 í sjónvarpi Símans og 800 hjá Vodafone. Upptaka af honum verður svo sett inn á heimasíðu SportTv
Umsjónarmenn eru Sóli Hólm og Sigurbjörn Hreiðarsson. Áhorfendur geta tekið þátt og komið með uppástungur að umræðuefni með því að hafa samband á @SoliHolm á Twitter.
Sjá einnig:
Smelltu hér til að sjá brot úr eldri þáttum



