Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
HM Álitið: Hvaða lið vinnur mótið?
Munur á Spáni og Íslandi - „Gylfi Sig á miðjunni og einhver rafvirki í vinstri bakverði“
Tómas Bent fer yfir tímabilið í Skotlandi - „Ákveðin pyntingaraðferð“
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
Gylfi um skilaréttsmálið: Meira en ánægður að hafa skipt
Aron Einar: Get staðfest að ég verð ekki áfram í Al-Gharafa
Sædís Rún: Á okkar degi getum við náð stigum af öllum liðum
Gagnrýnir nýju reglurnar harðlega - „Alveg skelfilegt ef ég á að vera hreinskilin“
Katla Tryggva fyrir Spánarleikinn: Það er alveg hægt að stríða þeim
Hödda langaði að fagna eins og Auðun gegn Haukum - „Allir á bekknum brjálaðir að hann hefði skotið"
banner
   sun 26. maí 2013 21:38
Hafliði Breiðfjörð
Þórður: Er Guðjón að þjálfa eitthvað lið í dag?
Þórður ræðir við Heimi Guðjónsson þjálfara FH í dag.
Þórður ræðir við Heimi Guðjónsson þjálfara FH í dag.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
,,Hann sópaði ekki nógu mikið," svaraði Þórður Þórðarson þjálfari ÍA í gríni eftir 2-0 tap gegn FH í Kaplakrika í kvöld aðspurður um fjarveru Jóhannesar Karls Guðjónssonar miðjumanns liðsins og skaut þar með létt á ummæli Guðjóns Þórðarsonar fyrrverandi þjálfara liðsins og föður Jóhannesar Karls sem gagnrýndi í vikunni hvernig Þórður hefur notað hann í liðinu.

,,Hann er veikur, það er ekkert flókið. Hann veiktist í morgun og það var vandamálið," bætti hann við en vill hann svara ummælum Guðjóns.

,,Nei ég þarf þess ekki. Er Guðjón að þjálfa eitthvað lið í dag? Ég þarf ekki að segja neitt meira."

Nánar er rætt við Þórð í sjónvarpinu hér að ofan og um leikinn segir hann:

,,Mér fannst við spila sterkan varnarleik í fyrri hálfleik eins og við lögðum upp með og þeir voru ekkert að ógna okkur, nokkur skot en ekkert að komast í gegnum okkur. Seinni hálfleikur byrjaði ágætlega en FHingar fengu mörk sem voru af ódýrari gerðinni hjá okkur, vel gert hjá þeim samt."
Slapp
banner