Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   sun 26. maí 2013 15:49
Fótbolti.net
Umfjöllun: Fáskrúðsfirðingar byrja af krafti
Almar Daði skoraði þrennu.
Almar Daði skoraði þrennu.
Mynd: Leiknir Fáskrúðsfirði
Leiknir F. 3 - 0 Magni
1-0 Almar Daði Jónsson ('38)
2-0 Almar Daði Jónsson ('50)
3-0 Almar Daði Jónsson ('62)

Leiknir tók á móti Magna frá Grenivík í Höllinni á Reyðarfirði í gær - laugardag. Leikurinn var lengst af nokkuð jafn en þó gekk Leikni betur að láta boltann ganga sín á milli og skapa færi.

Almar Daði Jónsson skoraði fyrsta markið þegar langt var liðið á fyrri hálfleikinn. Fannar Bjarki átti þá fallega sendingu út á vinstri kant á Hilmar Frey Bjartþósson sem plataði varnarmann Magna upp úr ullarsokkunum og kom síðan með hárnákvæma fyrirgjöf á kollinn á Almari sem nikkaði honum inn frá markteig.

Skömmu síðar slapp Hilmar í gegn, en lét Hjört Geir Heimisson markvörð Magna verja frá sér úr dauðafæri.

Magnamenn fengu eitt gott færi í fyrri hálfleik en skutu yfir eftir að boltinn hrökk út í teig eftir klafs. Staðan 1-0 í leikhléi.

Magnamenn mættu grimmari til leik eftir hlé og sköpuðu sér fljótlega gott færi. Þeir fengu aukaspyrnu nálægt miðlínu og sendu eins og jafnan í föstum leikatriðum háan bolta á Bjarka Má Árnason sem náði að skalla fyrir markið og á fjarstöng var mættur röndóttur kall sem nikkaði yfir þegar auðveldara virtist að skora.

Leikismenn rumskuðu við þetta og eftir gott spil slapp markamaskínan Almar í gegn og kláraði vel. 2-0
.
Þriðja markið var keimlíkt, Almar fékk góða sendingu í gegn um vörnina, lék á Hjört og renndi boltanum í netið. Hann slapp síðan í gegn hið þriðja sinnið en þá sá Hjörtur við honum og varði í stöng. Ekki var meira skorað og sanngjarn sigur heimamanna í höfn.

Leiknisliðið spilaði fínan bolta og byrjar 3. deildina af krafi, níu stig út úr þremur fyrstu leikjunum. Byrjunin er hins vegar erfið hjá Magna og liðið er stigalaust eftir tvær umferðir og á enn einn útileik fyrir höndum, þá gegn KFR. Bikarsigurinn gegn KA situr etv í lærisveinum Atla Más.
Slapp
banner