Heimild: Soccerway
Zinedine Zidane fyrrverandi miðjumaður Real Madrid segist gera ráð fyrir að Cristiano Ronaldo verði áfram hjá félaginu á næstu leiktíð.
Framtíð Ronaldo hefur verið talin í óvissu eftir að hann sagðist ósáttur hjá félaginu en Zidane sem er að taka við sem íþróttastjóri félagsins ef Florentino Perez verður endurkjörinn sem forseti segir að Ronaldo sé ekki að fara neitt.
,,Ronaldo er ánægður hjá Madrid," sagði Zodane við L'Equipe. ,,Hann er gríðarlega mikilvægur fyrir liðið og mun ekki fara til annars félags á næstu leiktíð."
Þegar er búið að staðfesta að knattspyrnustjórinn Jose Mourinho fari frá Real Madrid í sumar og margir töldu að Ronaldo færi einni. Hann er þó samningsbundinn til 2015.


