,,Það er rosalega erfitt að útskýra þetta. Mér fannst menn vera tilbúnir fyrir leik í að breyta þessu," sagði Zoran Ljubicic þjálfari Keflvíkinga við Fótbolta.net í kvöld eftir að liðið tapaði annað árið í röð 4-0 gegn Valsmönnum á Vodafonevellinum.
Zoran vill meina að uppgjöf hafi komið upp eftir að Valsmenn komust í 2-0 í síðari hálfleiknum.
,,Mér fannst þetta vera rothögg. Menn hættu að hafa trú á verkefninu og við gerðum alltof mörg mistök, sérstaklega fyrir framan markið."
Samúel Kári Friðjónsson, 17 ára strákur sem fer til Reading í sumar, lék sinn fyrsta leik í
Pepsi-deildinni í vinstri bakverði hjá Keflvíkingum. Hann fékk rauða spjaldið undir lokin fyrir kjaftbrúk.
,,Það eru tvær hliðar á þessari sögu. Hann segir eitt og dómarinn segir annað. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem við lendum í þessu. Ég er mjög ósáttur með það hvernig við fáum rauð spjöld stundum."
,,Þessi drengur er búinn að sýna að hann er flottur fótboltamaður. Stundum verður hann að passa skapið sitt. Hann er ungur leikmaður og getur lært helling af þessu rauða spjaldi."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.























