Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 26. maí 2015 18:19
Arnar Daði Arnarsson
Byrjunarlið ÍA og Breiðabliks: Þrjár breytingar hjá Skagaliðinu
Ein breyting hjá Breiðablik
Ásgeir Marteins. byrjar á bekknum í kvöld.
Ásgeir Marteins. byrjar á bekknum í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þrír leikir fara fram í Pepsi-deild karla í kvöld. Á Akranesi mætast ÍA og Breiðablik.

Beinar textalýsingar:
19:15 Leiknir R. - Víkingur R.
19:15 ÍA - Breiðablik

Ásgeir Marteinsson er settur á bekkinn hjá liði ÍA og Arsenij Buinickij kemur inn fyrir hann. Enginn Arnar Már Guðjónsson er í leikmannahóp ÍA í kvöld og Teitur Pétursson er settur á bekkinn. Darren Lough kemur inn í byrjunarliðið auk Gylfa Veigars. Það eru því þrjár breytingar á liði ÍA frá 4-1 tapinu gegn FH í síðustu umferð.

Arnar Grétarsson gerir eina breytingu á sínu liði frá síðasta leik. Guðmundur Friðriksson missir sætið sitt í byrjunarliðinu og þangað kemur Arnór Sveinn Aðalsteinsson í staðin.

Byrjunarlið ÍA:
12. Árni Snær Ólafsson (m)
4. Arnór Snær Guðmundsson
5. Ármann Smári Björnsson
9. Garðar Bergmann Gunnlaugsson
10. Jón Vilhelm Ákason
13. Arsenij Buinickij
16. Þórður Þorsteinn Þórðarson
18. Albert Hafsteinsson
20. Gylfi Veigar Gylfason
27. Darren Lough
31. Marko Andelkovic

Byrjunarlið Breiðabliks:
1. Gunnleifur Vignir Gunnleifsson (m)
3. Oliver Sigurjónsson
4. Damir Muminovic
5. Elfar Freyr Helgason
7. Höskuldur Gunnlaugsson
8. Arnþór Ari Atlason
10. Guðjón Pétur Lýðsson
22. Ellert Hreinsson
23. Kristinn Jónsson
29. Arnór Sveinn Aðalsteinsson
30. Andri Rafn Yeoman
Athugasemdir
banner
banner