Davíð Þór Viðarson, miðjumaður FH var ekki ánægður með eitt stig gegn Stjörnunni í kvöld, hann var hins vegar ánægður með spilamennsku liðsins.
Lestu um leikinn: Stjarnan 1 - 1 FH
„Nei, ég er ekki sáttur við það, við fengum fullt af færum sem við hefðum getað skorað úr. Við hefðum átt að nýta færin okkar betur."
„Ég er ánægður með hvernig við spiluðum í dag. Við stjórnuðum leiknum frá byrjun til enda en það er svekkjandi að það hafi ekki skilað sér í sigri."
Davíð fannst það afar svekkjandi að vera marki undir í hálfleik en FH var sterkari aðilinn eftir að hafa lent undir.
„Jú, það var það náttúrulega. Við fáum þetta mark í andlitið en við vorum fljótir að jafna okkur og við sköpuðum okkur fullt af sénsum í fyrri hálfleik. Það var svekkjandi að vera undir eftir að hafa stjórnað öllum fyrri háfleiknum."
Davíð segir undirbúninginn fyrir leik kvöldsins ekki vera frábrugðin því sem gerist venjulega, þrátt fyrir að liðið hafi tapað íslandsmeistaratitlinum á síðustu sekúndunum í fyrra í leik gegn Stjörnunni.
„Nei, þetta var það sama. Það sem gerðist í fyrra var grátlegt en við ákváðum það snemma eftir það atvik að það væri fortíð."
Hann segir Kassim "The Dream" Doumbia vera frábæran leikmann þótt hann sé með skap.
„Kassim er frábær leikmaður og það sést vel í kvöld. Þótt hann sé með skap. Það er ekkert gaman að mönnum sem eru skaplausir."
Athugasemdir