Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 26. maí 2015 11:09
Magnús Már Einarsson
Harry Kane ekki að fara neitt
Mynd: Getty Images
Harry Kane, framherji Tottenham, segist ekki ætla að fara frá félaginu í sumar.

Kane skoraði 21 mark í ensku úrvalsdeildinni á nýliðnu tímabili en hann var orðaður við Manchester United á dögunum. Kane segist þó ekki ætla að fara neitt.

„Spurs er stórt félag og ég á bjarta framtíð fyrir höndum hér," sagði Kane.

„Ég vona að ég geti haldið áfram að skora mörk og standa mig vel með félaginu."

Kane er mættur til Malasíu ásamt liðsfélögum sínum í Tottenham en félagið er í æfinga og keppnisferð þar.
Athugasemdir
banner
banner