Mexíkóski framherjinn Javier Hernandez mun snúa aftur til Manchester United í sumar.
Hernandez er 26 ára gamall en hann var á láni hjá Real Madrid á nýliðnu tímabili.
Hernandez skoraði níu mörk í 33 leikjum með Real Madrid.
Spænska félagið hefur hins vegar ákveðið að nýta sér ekki klásúlu til að kaupa hann frá United.

Hernandez á eitt ár eftir af samningi sínum við Manchester United en hann hefur skorað 59 mörk í 154 leikjum með félaginu.
Athugasemdir