Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 26. maí 2015 18:00
Magnús Már Einarsson
John Arne Riise á förum frá Kýpur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
John Arne Riise, fyrrum leikmaður Liverpool, er á förum frá Apoel í Kýpur.

Riise varð tvöfaldur meistari með Apoel á nýliðnu tímabili en þessi 34 ára gamli Norðmaður er nú í leit að nýju félagi.

„Ég gæti farið aftur til Noregs en ég tel að ég eigi ennþá nokkur ár inni erlendis," sagði Riise á bloggsíðu sinni.

„Ég ætla að taka langt sumarfrí og sjá síðan hver næsti áfangastaður verður."

Riise spilaði með Liverpool frá 2001 til 2008 en hann hefur síðan þá leikið með Roma, Fulham og Apoel.
Athugasemdir
banner
banner