Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 26. maí 2015 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Felldi Freiburg með sjálfsmarki í kveðjuleiknum
Mynd: Getty Images
Pavel Krmas, leikmaður Freiburg, felldi liðið sitt niður úr efstu deild þýska boltans með því að skora stórskrítið sjálfsmark í lokaumferðinni gegn Hannover.

Freiburg hefði haldið sér í deildinni með jafntefli gegn Hannover og var marki undir þegar Krmas gerði sjálfsmarkið á 84. mínútu.

Nils Petersen minnkaði muninn á 92. mínútu en það var ekki nóg og ljóst að Freiburg spilar í næstefstu deild þýska boltans á næsta tímabili.

Myndbandið má sjá hér fyrir neðan þar sem Roman Bürki í marki Freiburg reynir að bjarga boltanum frá því að fara inn en slær hann í Krmas sem þrumar honum í netið.

Það sem meira er, þá var þetta kveðjuleikur Krmas sem er orðinn 35 ára gamall og hefur spilað fyrir Freiburg í átta ár.


Athugasemdir
banner