Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
banner
   þri 26. maí 2015 22:48
Gunnar Birgisson
Óli Þórðar: Pökkuðu okkur bara saman
Óli var ekki sáttur.
Óli var ekki sáttur.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Ólafur Þórðarson hafði litla sem enga ástæðu til að fara sáttur frá borði þegar lið hans Víkingur tapaði fyrir Leikni 2-0 í Pepsi deild karla nú í kvöld.

„Leiknismenn bara áttu fyrri hálfleikinn eins og hann lagði sig, þrátt fyrir það náðu þeir ekki að búa til nein færi úr því," sagði Ólafur í samtali við Fótbolta.net

Lestu um leikinn: Leiknir R. 2 -  0 Víkingur R.

„ Þeir voru grimmari og ákveðnari út um allt og pökkuðu okkur bara saman. Fáum á okkur mark eftir horn þar sem við eigum bara að gera betur. Svo fáum við á okkur mark snemma í seinni hálfleik úr aukaspyrnu sem mér finnst við eiga að koma í veg fyrir, eftir það finnst mér við eiga leikinn."

Aðspurður út í annað markið sem Víkingur fengu á sig í kvöld hafði Óli þetta að segja,
„Ég á eftir að sjá þetta í sjónvarpinu en ég tel það að hann hafi átt að gera betur."

„Ég nenni ekkert að vera ræða þetta mál hans Pape, hann er farinn og vonandi finnur hann gleðina í lífinu aftur," sagði Ólafur.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner