Sindri Björnsson var yfirvegaður en umfram allt sáttur með leik Leiknismanna þegar þeir sigldu heim góðum 2-0 sigri á Víking Reykjavík.
„Ég er glimrandi kátur með þrjú stig á heimavelli og hreint lak," sagði Sindri í samtali við Fótbolta.net
„Ég er glimrandi kátur með þrjú stig á heimavelli og hreint lak," sagði Sindri í samtali við Fótbolta.net
„Við dettum aðeins niður í seinni hálfleik en svo setur Charley Fomen hammer úr auka og þá er þetta ekkert í vafa."
Sindri var virkur í markaskorun í 1.deildinni í fyrra en hann setti 13 mörk og varð næst markahæstur. Hann er nú kominn með tvö mörk eftir fimm leiki, aðspurður hvort stefnan sé að halda áfram að skora mörk.
„Já....já ég ætla að halda því áfram."
Athugasemdir