Spánarmeistarar Barcelona eru með Hector Bellerín, hægri bakvörð Arsenal, efstan á óskalista sínum. Arsenal hefur hinsvegar ekki í hyggju að selja þennan 21 árs eldsnögga leikmann sem átti mjög gott tímabil með Lundúnaliðinu.
Dani Alves og Javier Mascherano eru báðir sterklega orðaðir við Juventus.
Bellerín hefur verið orðaður við Barcelona í nokkurn tíma.
Spánarmeistararnir hafa einnig mikinn áhuga á að fá Marquinhos, varnarmann Paris Saint-Germain.
Bellerín syngur Meistaradeildarlagið:
Athugasemdir