Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
banner
   fim 26. maí 2016 21:50
Jóhann Ingi Hafþórsson
Kaplakrika
Pétur Viðars: Er mest í því að hlaupa á ströndinni
Pétur Viðarsson.
Pétur Viðarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Pétur Viðarsson, leikmaður FH, var sáttur við 9-0 sigur á móti KF í kvöld.

FH er tveim deildum fyrir ofan KF og var aldrei spurning hvernig leikurinn fór, eins og tölurnar gefa til kynna.

Hann er sérstaklega ánæðgur með að liðið vannmat ekki andstæðinginn.

Lestu um leikinn: FH 9 -  0 KF

„Þetta var góður leikur hjá okkur í dag og jákvæðast að ég setti tvö. Ég er ánægður með að við gerðum þetta vel, það er oft þegar þú ert eitt af toppliðunum að spila á móti liðum í neðri deild, þá er oft erfitt að gíra sig í það."

Pétur kom óvænt heim á þessum tímapunkti en hann er í námi úti í Ástralíu og var ekki búist við að hann kæmi heim í sumar.

„Ég gat fært eitt próf sem ég átti að vera í úti og fékk auka mánuð, þá var aldrei spurning um að koma heim."

Hann segist vera lítið í fótbolta í Ástralíu.

„Það er lítið, ég er mest í því að æfa sjálfur og hlaupa á ströndinni."

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner