Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 26. maí 2016 20:27
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Tyrkland: Podolski tryggði Galatasaray þriðja bikarinn í röð
Podolski skoraði sigurmark Galatasaray
Podolski skoraði sigurmark Galatasaray
Mynd: Getty Images
Galatasaray 1 - 0 Fenerbache
1-0 Lukas Podolski (´31 )

Það var draumaúrslitaleikur í tyrkneska bikarnum í kvöld þegar Galatasaray og Fenerbache mættust.

Liðin eru gríðarlegir erkifjendur og má hér að neðan sjá myndband frá Copa 90 til marks um það.

Það fór svo í kvöld að Þjóðverjinn Lukas Podolski skoraði eina mark leiksins eftir rúman hálftíma og reyndist hann hetja Galatasaray.

Því er Galatasaray bikarmeistari í Tyrklandi, en það er þriðja árið í röð sem það gerist. Frammistaða liðsins í deildinni olli þó miklum vonbrigðum, en liðið endaði í 6. sæti.


Athugasemdir
banner
banner
banner