Manchester City hefur gengið frá kaupum á Bernardo Silva, leikmanni Mónakó, en Sky Sports greinir frá þessu.
Bernardo Silva er 22 ára Portúgali sem sló rækilega í gegn með Frakklandsmeisturum Mónakó í vetur en hann skoraði 8 mörk í deildinni auk þess sem að hann gaf 9 stoðsendingar.
Bernardo Silva var einnig mikilvægur hlekkur í góðu gengi Mónakó í meistaradeildinni í vetur en hann skoraði t.d. gegn Tottenham á Wembley í september.
Kaupverðið er talið vera um 43 milljónir punda en þetta eru fyrstu stóru kaup Pep Guardiola hjá City í sumar.
Silva mun klæðasta treyju númer 20 hjá City en samningurinn gildir til ársins 2022.
Athugasemdir