Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fös 26. maí 2017 14:00
Elvar Geir Magnússon
Þjálfari Brasilíu: Coutinho yrði frábær fyrir Barcelona
Coutinho í leik með brasilíska landsliðinu.
Coutinho í leik með brasilíska landsliðinu.
Mynd: Getty Images
Philippe Coutinho myndi smellpassa í Barcelona. Þetta segir Tite, landsliðsþjálfari Brasilíu.

Coutinho, sem er lykilmaður hjá Liverpool, hefur verið orðaður við Barcelona í nokkurn tíma og sagt að Neymar og Luis Suarez hafi báðir lýst því yfir að þeir vilji fá Brasilíumanninn sem liðsfélaga.

Coutinho sagði sjálfur að hann væri tilbúinn að virða samning sinn við Liverpool sem er til 2022.

„Barcelona ætti klárlega að reyna að fá hann. Hver vill ekki hafa leikmann með töfra eins og Coutinho, þessa hugmyndaauðgi og sköpunarmátt, hraðabreytingar, þríhyrningaspil og sóknaruppbyggingu?" segir Tite.
Athugasemdir
banner
banner