Það kemur í ljós í dag hvaða lið fylgir Wolves og Cardiff upp úr Championship deildinni og í ensku úrvalsdeildina.
Wolves og Cardiff fóru beint upp en þessi lið enduðu í tveimur efstu sætunum. Aston Villa, Derby, Middlesbrough og Fulham fóru í umspil en Aston Villa hafði betur gegn Middlesbrough og Fulham sigraði Derby.
Aston Villa og Fulham mætast því í dag í úrslitaleik umspilsins á Wembley en flautað verður til leiks þar klukkan 16:00.
Aston Villa lék síðast í ensku úrvalsdeildinni tímabilið 2015/16 en það hefur liðið lengri tími frá því að Fulham spilaði þar en það var tímabilið, 2013/14.
Laugardagur 26. maí
16:00 Aston Villa - Fulham (Stöð 2 Sport)
Athugasemdir