Pedro Hipolito, þjálfari Fram, var stoltur af liði sínu eftir tapleik gegn Þór þar sem hans menn voru einum manni færri síðasta klukkutímann.
Lestu um leikinn: Þór 3 - 2 Fram
„Ég er stoltur af liðinu mínu, ungu leikmönnunum mínum, hvað þeir lögðu hart að sér og ástríðunni gegn ofbeldi frá fyrstu mínútu. Fred og Alex fara út meiddir, engin gul spjöld," sagði Hipolito inntur eftir viðbrögðum eftir leik.
Hipolito var ekki ánægður með dómara leiksins en tveir leikmanna Fram fóru útaf meiddir. Annar þeirra, Alex Freyr Elísson, fór útaf meiddur í upphafi seinni hálfleiks. Hipolito telur hann vera fótbrotinn og þar með frá út tímabilið.
Einnig minntist hann á hversu ungt Fram-liðið er en fimm leikmenn á bekknum voru fæddir árið 1999 eða seinna.
Viðtalið í heild sinni er hægt að sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir