Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 26. maí 2018 09:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Reus ánægður með nýja stjóra Dortmund: Besti stjóri sem ég hef haft
Mynd: Getty Images
Lucien Favre tók við Dortmund á dögunum en hann þjálfaði áður Nice í Frakklandi.

Favre hefur reynslu úr þýsku Bundesligunni því hann þjálfaði Borussia Mönchengladbach frá 2011 til 2015, Marco Reus sem leikur í dag með Dortmund lék undir hans stjórn hjá Mönchengladbach.

„Ég hef haft þá nokkra stjórana í gegnum tíðina og hann er líklega sá besti."

„Auðvitað hefur langur tími liðið frá því við unnum saman síðast, það var frábært að sjá hvað hann lagði mikinn metnað og vinnu í hlutina. Ég vona að hann sé sá sami og hann var því þá hef ég mikla trú á því að hann geti komið Dortmund aftur á þann stað sem það var," sagði Marco Reus um Favre.
Athugasemdir
banner
banner