Valencia er búið að staðfesta kaupin á Geoffrey Kondogbia. Frakkinn var í lykilhlutverki fyrir félagið á nýliðnu tímabili þar sem Valencia náði Meistaradeildarsæti.
Kondogbia var á láni frá Inter og ákvað spænska félagið að nýta kaupréttinn sinn. Kaupverðið eru 25 milljónir evra.
Kondogbia var á láni frá Inter og ákvað spænska félagið að nýta kaupréttinn sinn. Kaupverðið eru 25 milljónir evra.
Kondogbia er varnartengiliður en getur einnig spilað í vörn, sem miðvörður eða vinstri bakvörður.
Hann býr yfir mikilli reynslu enda hefur hann spilað fyrir Lens, Sevilla, Mónakó og Inter á ferlinum. Þá var hann orðaður við Tottenham fyrr í vikunni.
Kondogbia er 25 ára og lék 57 landsleiki fyrir yngri lið Frakka og 5 fyrir aðalliðið. Hann fer ekki á HM í sumar.
Athugasemdir