Carlo Ancelotti, fyrrum stjóri Real Madrid, segir að Cristiano Ronaldo sé ekki alveg eins og allir halda að hann sé.
Ancelotti segir að skoðun almennings á Ronaldo passi ekki við það sem hann upplifði sem þjálfari hans.
„Þú sérð öðruvísi Ronaldo þegar þú ert þjálfari liðsins sem hann spilar með," sagði Ancelotti.
„Allur heimurinn er með ákveðna ímynd að Ronaldo og hvernig hann lítur út, eða hvernig hann fagnar þegar hann skorar, eða hvernig hann bregst við þegar hlutirnir fara ekki á réttan veg. Ég sá bara einstakling sem vill alltaf gera sitt besta."
„Ég sá hann aldrei skoða sig sjálfan í speglinum í búningsklefanum eða hafa áhyggjur að því hvernig hann leit út."
Athugasemdir