Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 26. júní 2016 19:53
Arnar Geir Halldórsson
Dani Alves til Juventus (Staðfest)
Dani Alves hefur hampað ófáum titlum á sínum ferli
Dani Alves hefur hampað ófáum titlum á sínum ferli
Mynd: Getty Images
Brasilíski bakvörðurinn Dani Alves er genginn til liðs við Ítalíumeistara Juventus en hann kemur til félagsins frá Barcelona.

Samningur Alves við Barcelona er á enda runninn og þarf Juventus því ekkert að borga fyrir þennan 33 ára gamla leikmann.

Alves hefur verið í herbúðum Börsunga frá árinu 2008 þegar hann kom til félagsins frá Sevilla. Hann hefur unnið La Liga sex sinnum, Meistaradeild Evrópu þrisvar og spænska Konungsbikarinn fimm sinnum, þar af einu sinni með Sevilla en hann vann einnig Evrópudeildina tvívegis með Sevilla.

Alves er annar leikmaðurinn sem Juventus fær til sín í sumar en áður hafði Juve keypt Miralem Pjanic frá Roma fyrir rúmar þrjátíu milljónir evra en liðið seldi Alvaro Morata til Real Madrid.



Athugasemdir
banner
banner