Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 26. júní 2016 18:36
Arnar Geir Halldórsson
Einkunnir Þýskalands og Slóvakíu: Draxler bestur, Skrtel verstur
Julian Draxler
Julian Draxler
Mynd: Getty Images
Heimsmeistarar Þjóðverja áttu ekki í nokkrum einustu vandræðum með Slóvakíu í leik liðanna í 16-liða úrslitum EM í dag.

Það var snemma ljóst í hvað stefndi því Jerome Boateng kom Þýskalandi í 1-0 strax á áttundu mínútu leiksins. Hann fær næsthæstu einkunn en hæstu einkunn fær Julian Draxler sem skoraði eitt og lagði upp eitt.

Martin Skrtel, leikmaður Liverpool, átti afar erfitt uppdráttar í dag líkt og reyndar margir liðsfélagar hans. Skrtel fær falleinkunn fyrir sitt framlag í einkunnagjöf goal.com.

Þýskaland
Neuer 7
Hector 7
Boateng 8
Hummels 7
Kimmich 6
Khedira 6
Kroos 7
Draxler 9 - Maður leiksins
Özil 5
Gomez 7
Muller 7
Varamenn: Höwedes 6, Schweinsteiger 6, Podolski 6.

Slóvakía
Kozacik 7
Skrtel 3
Pekarik 5
Durica 6
Gyömber 5
Skriniar 5
Hrosovsky 5
Kucka 6
Hamsik 5
Weiss 5
Duris 3
Varamenn: Gregus 3, Sestak 4.
Athugasemdir
banner
banner