Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 26. júní 2016 14:41
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Erlendir fjölmiðlar fjalla um brottrekstur Gumma Ben frá KR
Icelandair
Gummi Ben (til vinstri) og Bjarni voru látnir fara
Gummi Ben (til vinstri) og Bjarni voru látnir fara
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Eins og fram hefur komið áður þá hefur Guðmundur Benediktsson, Gummi Ben, vakið mikla athygli erlendis eftir lýsingu sína á sigurmarki Íslands gegn Austurríki.

Gummi fór á kostum þegar Arnór Ingvi Traustason skoraði sigurmark Íslands á 93. mínútu og varð hann eiginlega heimsþekktur á einni nóttu, ef svo má segja.

Í gær voru hann og Bjarni Guðjónsson látnir fara frá KR, en Gummi gegndi þar stöðu aðstoðarþjálfara.

Erlendir fjölmiðlar eru greinilega ekki búnir að gleyma Gumma því þeir hafa verið að fjalla um brottrekstur hans frá KR. Á meðal þeirra sem fjallað hafa um málið eru Goal og 101 Great Goals.

„Klikkaði lýsandinn frá Íslandi missir starfið," er fyrirsögn fréttarinnar hjá Goal.

„Sem betur fer missti hann ekki starfið sem lýsandi heldur sem aðstoðarþjálfari KR í Reykjavík."

Smelltu hér til að lesa fréttina frá Goal

Smelltu hér til að lesa fréttina frá 101 Great Goals
Athugasemdir
banner
banner