Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 26. júní 2016 13:59
Jóhann Ingi Hafþórsson
Nice
Heimir: Leikmennirnir eru íslenski herinn
Icelandair
Heimir Hallgrímsson.
Heimir Hallgrímsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Lars Lagerback, Heimir Hallgrímsson, Aron Einar Gunnarsson og Gylfi Þór Sigurðsson sátu fyrir svörum fréttamanna á fundi á Stade de Nice í dag en þar fer fram leikur Íslands og Englands í 16 liða úrslitunum, annað kvöld.

Sænskur fréttamaður spurði Heimir og Aron um þorskastríðið og hvort það hefði áhrif á leikinn og hafði Heimir þetta um það að segja.

„Það var áður en Aron fæddist," sagði Heimir léttur.

„Þetta er í eina skiptið sem Ísland hefur tekið þátt í stríði. Við erum of fá til að vera með her og það myndi enda illa ef við færum í stríð. Leikmennirnir okkar er íslenski herinn," sagði Heimir.

Fótbolti.net er með öflugt teymi á Evrópumótinu og færir ykkur fjölmargar fréttir daglega. Einnig er fylgst grannt með gegnum helstu samskiptamiðla.
- Vertu með okkur á Twitter með því að nota kassamerkið #fotboltinet fyrir færslur um mótið.
- Fótbolti.net á Snapchat: Fotboltinet
- Fótbolti.net á Instagram: Smelltu hér til að sjá .Net á Instagram.
Fótbolti.net á Facebook: Smelltu hér til að fara á heimasvæði Fótbolta.net á Facebook.

FARÐU Á EM SÍÐU FÓTBOLTA.NET
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner