Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 26. júní 2016 16:31
Jóhann Ingi Hafþórsson
Nice
Hodgson: Erum með góða framherja á bekknum sem geta hjálpað
Icelandair
Roy Hodgson
Roy Hodgson
Mynd: Getty Images
Roy Hodgson var ásamt Wayne Rooney, fulltrúi Englendinga á fréttamannafundi í Nice í dag.

Þeir töluðu þá um leikinn gegn Íslandi og Hodgson var spurður út í framherjana sína fyrir leikinn.

„Ég hef alltaf verið ánægður með framherjana mína. Við vitum aldrei hvernig þeir spila fyrirfram þó maður viti hvaða leikmenn maður velur. Maður sér þá á æfingu og maður reynir að velja besta leikmanninn fyrir hvaða leik fyrir sig.

„Ef það gengur ekki erum við með góða framherja á bekknum. Við erum með marga framherja og miðjumenn og það getur hjálpað okkur gegn Íslandi og ef við förum áfram," sagði Hodgson.

Fótbolti.net er með öflugt teymi á Evrópumótinu og færir ykkur fjölmargar fréttir daglega. Einnig er fylgst grannt með gegnum helstu samskiptamiðla.
- Vertu með okkur á Twitter með því að nota kassamerkið #fotboltinet fyrir færslur um mótið.
- Fótbolti.net á Snapchat: Fotboltinet
- Fótbolti.net á Instagram: Smelltu hér til að sjá .Net á Instagram.
Fótbolti.net á Facebook: Smelltu hér til að fara á heimasvæði Fótbolta.net á Facebook.

FARÐU Á EM SÍÐU FÓTBOLTA.NET
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner