Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 26. júní 2016 14:03
Jóhann Ingi Hafþórsson
Nice
Lars: Viljum stíga upp og vera meira með boltann
Icelandair
Lars Lagerback
Lars Lagerback
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Lars Lagerback, Heimir Hallgrímsson, Aron Einar Gunnarsson og Gylfi Þór Sigurðsson sátu fyrir svörum fréttamanna á fundi á Stade de Nice í dag en þar fer fram leikur Íslands og Englands í 16 liða úrslitunum, annað kvöld.

Lagerback var spurður hvort hann væri að búast við svipuðum leik og áður hjá Íslandi í keppninni.

„Það er alltaf erfitt að segja fyrir leik. Ég býst við að England verði meira með boltann en maður veit aldrei. það er mjög heitt og það fer eftir því hversu heitt það verður, hvernig leikurinn spilast.

„ Það er mjög heitt og það fer eftir hitastiginu á morgun hvernig leikurinn verður. England verður örugglega meira með boltann en við sjáum til hvort við getum stigið upp og verið meira með botlann en í hinum leikjunum og vonandi getum við náð svipuðum úrslitum og við höfum verið að gera," sagði Lars.

Fótbolti.net er með öflugt teymi á Evrópumótinu og færir ykkur fjölmargar fréttir daglega. Einnig er fylgst grannt með gegnum helstu samskiptamiðla.
- Vertu með okkur á Twitter með því að nota kassamerkið #fotboltinet fyrir færslur um mótið.
- Fótbolti.net á Snapchat: Fotboltinet
- Fótbolti.net á Instagram: Smelltu hér til að sjá .Net á Instagram.
Fótbolti.net á Facebook: Smelltu hér til að fara á heimasvæði Fótbolta.net á Facebook.

FARÐU Á EM SÍÐU FÓTBOLTA.NET
Athugasemdir
banner
banner
banner