Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 26. júní 2016 09:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Modric huggaður af félögum sínum hjá Real Madrid í gær
Modric var svekktur eftir leikinn í gær
Modric var svekktur eftir leikinn í gær
Mynd: Getty Images
Miðjumaðurinn Luka Modric var niðurlútur eftir tap gegn Portúgal í 16-liða úrslitum á EM í Frakklandi í gær.

Ricardo Quaresma skoraði sigurmark Portúgala þegar langt var komið fram í framlengingu og tóku úrslitin á Modric og felldi hann nokkur tár eftir leikinn.

Cristiano Ronaldo, sem var eins og frægt er orðið gagnrýndur fyrir viðbrögð sín eftir leikinn gegn Íslandi, sýndi mikinn góðvilja gagnvart liðsfélaga sínum hjá Real Madrid eftir leikinn í gær.

Ronaldo sýndi Modric virðingu eftir leikinn eins og sjá má hér að neðan. Varnarmaðurinn umdeildi, Pepe gerði það einnig.

Pepe, Ronaldo og Modric eru allir liðsfélagar hjá spænska stórveldinu Real Madrid.



Athugasemdir
banner
banner
banner