Leikur Frakklands og Írlands í 16-liða úrslitunum á EM í Frakklandi stendur nú yfir.
Fyrir fram var búist við því að Frakkar myndu vinna heldur auðveldan sigur.
Fyrir fram var búist við því að Frakkar myndu vinna heldur auðveldan sigur.
Það voru þó Írar sem náðu forystunni í leiknum, en markið kom eftir tveggja mínútna leik.
Paul Pogba braut af Shane Long innan teigs og vítaspyrna var dæmd. Robbie Brady steig á punktinn og annan leikinn í röð skoraði hann fyrir Íra.
Markið má sjá hér að neðan.
Hræðileg byrjun fyrir gestgjafana. Pogba fær á sig víti sem Brady skorar örugglega úr. 1-0 fyrir #IRL #EMÍsland https://t.co/yuzj5uEyGD
— Síminn (@siminn) June 26, 2016
Athugasemdir