Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   mán 26. júní 2017 21:45
Magnús Már Einarsson
Alex Freyr: Harðfiskurinn er hrikalega góður
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Alex Freyr Hilmarsson var maðurinn á bakvið 2-0 sigur Víkings R. á Víkingi Ó. í kvöld en hann skoraði bæði mörkin í leiknum. Fyrra markið kom úr aukaspyrnu sem Cristian Martines hefði átt að verja.

„Það var smá deflection í þessu skilst mér og mark er mark er það ekki?" sagði Alex léttur.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 2 -  0 Víkingur Ó.

Alex skoraði síðara markið eftir langa sendingu frá Ívari erni Jónssyni en varnarmenn Ólafsvíkinga gleymdu sér inni á teignum.

„Ég fann mér pláss á milli hafsenta og hann teiknaði boltann á mig. Þeir voru ekki alveg klárir í vörninni."

Alex er núna kominn með fjögur mörk í Pepsi-deildinni í sumar.

„Ég veiktist fyrir tímabilið í fyrra og var ekki í alveg nógu góðu formi en mér finnst ég vera í þokkalegu formi núna."

Alex fær þrjú bónusstig í Draumaliðsdeild Eyjabita fyrir frammistöðu sína í kvöld. Hann fékk einnig harðfisk að launum frá Eyjabita.

„Harðfiskurinn er hrikalega góður smá smjöri," sagði Alex sáttur eftir að hafa fengið harðfiskinn í hendurnar.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner