Íslenski landsliðsmaðurinn Arnór Ingvi Traustason er líklega á förum frá Rapid Vín. Austurrísku fjölmiðlarnir Kurier og Laola greina frá þessu í dag.
Samkvæmt frétt Laola er umboðsmaður Arnórs að skoða möguleikana fyrir hann en nokkur félög hafa sýnt honum áhuga.
Arnór kom til Rapid Vín í fyrrasumar eftir að hafa árið áður orðið sænskur meistari með Norrköping.

Meiðsli settu strik í reikninginn á fyrsta tímabili Arnórs í Austurríki en Rapid Vín endaði í 5. sæti.
„Ég hef átt betri tímabil. Það hefur margt spilað inn í. Það voru fjórir þjálfarar og þetta hefur verið smá erfitt. Liðið átti ekki gott tímabil í heild og það hjálpaði mér ekki. Ég vona að næsta tímabil verði örlítið betra," sagði Arnór við Fótbolta.net á dögunum.
Arnór Ingvi er 24 ára gamall en hann hefur skorað fimm mörk í þrettán leikjum með íslenska landsliðinu á ferli sínum.
Athugasemdir