Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
banner
   mán 26. júní 2017 21:40
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ejub: Snillingar sem taka ákvarðanir sem þeir skilja ekki sjálfir
Ejub var ekki sáttur með sína menn í kvöld.
Ejub var ekki sáttur með sína menn í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég er mjög svekktur. Mér finnst leikurinn allan tímann í jafnvægi. Fyrri hálfleikurinn var í mjög góðu jafnvægi og seinni hálfleikurinn líka. Svo er ég með nokkra snillinga sem taka ákvarðanir sem ég held að þeir skilji ekki sjálfir," sagði Ejub Purisevic, þjálfari Víkings Ólafsvíkur, eftir 2-0 tap gegn Víkingi R. í Pepsi-deild karla í kvöld.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 2 -  0 Víkingur Ó.

„Það er rosalega erfitt að spila í þessari deild ef að þú gerir svona mistök eins og við gerðum í þessum leik."

Ejub var spurður nánar út í mistökin.

„Hafsentinn okkar ákveður að fara upp þegar hann gat sent boltann, hann missir boltann. Við erum að gefa aukaspyrnu, sem fer beint á markvörðinn," sagði Ejub.

„Í seinna markinu, í staðinn fyrir að skalla boltann út, þá erum við að reyna að taka boltann niður í teignum. Auðvitað er völlurinn blautur og það getur verið erfitt."

Það voru fimm menn á bekknum hjá Ólsurum, en það er leyfilegt að hafa sjö menn á bekknum.

„Það eru einhver meiðsli og 2. flokkur var að spila í gær. Þetta er bara svona, í næsta leik verðum við með 18."

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner