Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 26. júní 2017 08:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Goretzka orðaður við Arsenal - Vill ekki segja neitt
Orðaður við Arsenal.
Orðaður við Arsenal.
Mynd: Getty Images
Leon Goretzka hefur undanfarna daga verið orðaður við Arsenal. Hann leikur með Schalke 04 í Þýskalandi, en hann er þessa stundina að keppa í Álfukeppninni með þýska landsliðinu.

Samkvæmt ensku pressunni þá ætlar Arsenal að bjóða 21 milljón punda í Goretzka, sem á eitt ár eftir af samningi sínum við Schalke.

„Ég vil ekki segja neitt um sögusagnirnar, ég er að einbeita mér að Álfukeppninni," sagði hann við blaðamenn í Rússlandi.

„Ég mun ekki segja ykkur frá öllu því sem gerist, en ef eitthvað er klárt og klappað, þá mun ég tilkynna það."

„Ég er ekki hrifinn af því sem er sagt í blöðunum, ég veit um gæði mín," sagði Goretzka hress að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner