Matthew Gillett, stuðningsmaður Bristol City, var hissa þegar hann fékk nýju Bristol City treyjuna sína.
Gillett keypti sér nýju útivallartreyjuna hjá Bristol City og honum fannst það því skrýtið að sjá að inn í treyjunni var miði sem á stóð Oxford United. Gillett tístaði um málið.
Gillett keypti sér nýju útivallartreyjuna hjá Bristol City og honum fannst það því skrýtið að sjá að inn í treyjunni var miði sem á stóð Oxford United. Gillett tístaði um málið.
„Hafiði einhverja hugmynd um það af hverju það er Oxford United merki á miða inn í nýju Bristol City treyjunni minni," skrifaði hann á Twitter-síðu sinni.
Bristol Sport, sem sér um að gera treyjuna, hafði samband við Matthew, baðst afsökunar og buðu honum nýja treyju.
„Við erum að rannsaka þetta mál, en þetta virðist vera einangrað atvik," sagði Andrew Billingham, framkvæmdastjóri Bristol Sport.
Hér að neðan má sjá tístið hjá Matthew.
@bcfctweets @Scotty_Murray @BCFC_Supporters Any idea why there's an Oxford United badge on the label inside my new #PurpleAndLime shirt? ⚽️ pic.twitter.com/ceQd3b6kpI
— Matthew Gillett (@MTG1897) June 24, 2017
Athugasemdir